19 nóv. 2003FIBA hefur gefið út skipulagningu á hinni s.k. "Diamond Ball" keppni, sem haldin verður í Belgrad í Serbíu skömmu fyrir Ólympíuleikana í Aþenu á næsta ári, eða 31. júlí til 3. ágúst 2004. Þær þjóðir sem taka þátt eru fulltrúar heimsálfanna, auk ríkjandi heimsmeistara, að þessu sinni Angóla (Afríka), Argentína (Ameríka), Ástralía, Kína (Asía), Litháen (Evrópa) og Serbía & Montenegro (heimsmeistarar). FIBA hefur einnig ákveðið að skipuleggja samsvarandi mót fyrir kvennalandslið af sama tilefni, og verður sú keppni haldin í Iraklon í Grikklandi um svipað leyti. Ekki liggur enn fyrir endanlega hvaða þjóðir taka þátt í þeirri keppni.